Hannaðu þína eigin kökutoppa á nokkrum mínútum

Við bjóðum upp á einfalt og notendavænt hönnunarkerfi þar sem þú getur hannað sérsniðna 3D prentaða kökutoppa fyrir afmæli, fermingar, skírnir og önnur tilefni.

Notendavænt viðmót

Við lögðum okkur mikið fram við að hanna hönnunarkerfið með það í huga að hver sem er getur notað það.

Matvælavænt prentefni

Kökutopparnir eru prentaðir úr PLA sem er búið til úr maíssterkju og má því vera í snertingu við matvæli.

Íslenskt framleiðsla og snögg afgreiðsla

Allar pantanir eru 3D prentaðar á Íslandi og fara í póst næsta virka dag.

Hannaðu þína eigin kökutoppa

Allt sem þú þarft til að búa til 3D prentaðan kökutopp

  • Skemmtilegar leturgerðir til að velja úr
  • Mikið úrval lita í boði
  • Einn eða tveir litir

  • Stillanlegur fótur og tengingar
  • Fjöldi tákna í boði

Algengar spurningar

Fyrir hvaða tilefni henta kökutoppar?2026-06-10T00:02:55+00:00

Kökutoppar henta fyrir fjölmörg tilefni, þar á meðal afmæli, fermingar, skírnir, brúðkaup, útskriftir og önnur veisluhöld. Hægt er að sérsníða textann að hvaða tilefni sem er.

Get ég valið lit á kökutoppnum?2026-06-10T00:05:38+00:00

Já, við bjóðum upp á fjölbreytt úrval lita. Þú getur valið þann lit sem hentar best þema veislunnar eða kökunnar.

Hvað tekur framleiðslan langan tíma?2026-06-10T00:01:34+00:00

Við prentum samdægurs og setjum pöntunina í póst næsta virka dag.

Hversu stórir eru kökutopparnir?2026-06-09T23:58:41+00:00

Það er mjög auðvelt að stilla stærðina á kökutoppunum í hönnunarkerfinu. Hámarksstærð er 220×220 mm. Ef hönnunin fer yfir þá stærð þá scale-ar kerfið kökutoppinn þannig að hann verði ekki of stór.

Úr hverju eru kökutopparnir gerðir?2026-06-10T00:05:00+00:00

Kökutopparnir okkar eru 3D prentaðir úr PLA plasti sem er framleitt úr endurnýjanlegum hráefnum eins og maíssterkju og sykurreyr. PLA er sterkt, létt og gefur fallega matta áferð sem hentar einstaklega vel fyrir kökuskreytingar. Þar sem efnið er unnið úr plöntubundnum auðlindum er það umhverfisvænni kostur en mörg hefðbundin plastefni.

Go to Top