Kökutopparnir okkar eru 3D prentaðir úr PLA plasti sem er framleitt úr endurnýjanlegum hráefnum eins og maíssterkju og sykurreyr. PLA er sterkt, létt og gefur fallega matta áferð sem hentar einstaklega vel fyrir kökuskreytingar. Þar sem efnið er unnið úr plöntubundnum auðlindum er það umhverfisvænni kostur en mörg hefðbundin plastefni.