Algengar spurningar
Kökutoppar henta fyrir fjölmörg tilefni, þar á meðal afmæli, fermingar, skírnir, brúðkaup, útskriftir og önnur veisluhöld. Hægt er að sérsníða textann að hvaða tilefni sem er.
Já, við bjóðum upp á fjölbreytt úrval lita. Þú getur valið þann lit sem hentar best þema veislunnar eða kökunnar.
Við prentum samdægurs og setjum pöntunina í póst næsta virka dag.
Það er mjög auðvelt að stilla stærðina á kökutoppunum í hönnunarkerfinu. Hámarksstærð er 220×220 mm. Ef hönnunin fer yfir þá stærð þá scale-ar kerfið kökutoppinn þannig að hann verði ekki of stór.
Kökutopparnir okkar eru 3D prentaðir úr PLA plasti sem er framleitt úr endurnýjanlegum hráefnum eins og maíssterkju og sykurreyr. PLA er sterkt, létt og gefur fallega matta áferð sem hentar einstaklega vel fyrir kökuskreytingar. Þar sem efnið er unnið úr plöntubundnum auðlindum er það umhverfisvænni kostur en mörg hefðbundin plastefni.



