Skilmálar

1. Almenn ákvæði

Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru eða þjónustu á vefsvæðinu www.skurdur.is. Eigandi skurdur.is er í eigu Björgvins Rúnars Valentínussonar, Miðengi 19, 800 Selfoss. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur skurdur.is annars vegar og kaupanda vöru eða þjónustu hins vegar. Hafi skilmálar þessir ekki verið samþykktir við nýskráningu á vefsíðu skurdur.is teljast þeir samþykktir við fyrstu kaup á vöru eða þjónustu.

„Kaupandi“ er einstaklingur, sem er aðili samnings en stundar ekki viðskipti eða aðra athafnastarfsemi, þ.e. einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Skurdur.is selur vörur eða þjónustu til kaupanda á vefsvæði sínu. Skurdur.is býður einnig kaupanda að fá vöruna senda heim til sín.

2. Upplýsingar og verð

Verð á vefsvæði skurdur.is og í útsendum póstum eru með virðisaukaskatti og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur. Skurdur.is áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef að viðkomandi vara er uppseld, skemmd eða gölluð. Skurdur.is mun upplýsa kaupanda um allt slíkt eins fljótt og auðið er, og hugsanlega koma með tillögu að annarri vöru sem kaupanda gefst kostur á að samþykkja eða hafna.

3. Persónuupplýsingar

Á skurdur.is er aðgengileg persónuverndarstefna félagsins. Í þessari persónuverndaryfirlýsingu kemur fram hvernig skurdur.is umgengst þær persónuupplýsingar sem skurdur.is geymir um kaupanda og hvaða réttindi hann á varðandi upplýsingarnar.

4. Aðgangur

Kaupandi hefur leyfi til að nota skurdur.is og þá þjónustu sem þar er boðið upp á í samræmi við skilmála þessa og þær aðgangstakmarkanir sem skurdur.is setur. Stranglega er bannað að falsa nafn og persónuupplýsingar við skráningu inn á

skurdur.is. Skurdur.is áskilur sér rétt til að vinna náið með lögreglu við úrlausn slíkra mála, þ.m.t. að veita henni þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru. Verði kaupandi uppvís að sviksamlegu athæfi við kaup á skurdur.is verður það tilkynnt til lögreglu. Skurdur.is áskilur sér rétt til að takmarka eða loka fyrir aðgang að skurdur.is ef grunur leikur á að kaupandi hafi orðið uppvís að falsa nafn og persónuupplýsingar við skráningu.

5. Innskráning, pöntun og afhending

Við fyrstu innskráningu á skurdur.is skráir kaupandi fullt nafn, heimilisfang og tölvupóstfang sitt og samþykkir að hann hafi lesið persónuverndarstefnu félagsins. Einnig getur kaupandi samþykkt að vera á póstlista skurdur.is. Pöntun kaupanda á skurdur.is er bindandi þegar hann hefur staðfest pöntun sína í kaupferlinu. Skurdur.is er skuldbundið að afgreiða pöntun kaupanda (nema í tilvikum sem nefnd eru í 2. grein þessara skilmála) og sendir kaupanda staðfestingu með tölvupósti. Jafnframt sendir skurdur.is kaupanda afrit af reikningi þ.e. ef greiðsla berst frá kaupanda. Kaupanda er bent á að kynna sér vel staðfestingu á pöntun þegar hún berst. Í kaupferlinu velur kaupandi sér afhendingarmáta.

6. Yfirferð á vöru

Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að byrja á því að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestingu og reikning. Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar sem fylgja með vörunni. Ef kaupandi telur að varan sé ekki í samræmi við vörulýsingu þá þarf hann að senda tilkynningu þess efnis með tölvupósti á skurdur@skurdur.is. Skurdur.is áskilur sér rétt að sannreyna staðhæfingu innan 7 daga.

7. Samningurinn

Með greiðslu staðfestir kaupandi að hann þekki gildandi skilmála skurdur.is. Skilmálarnir eru aðgengilegir á vefsvæði skurdur.is. Hver kaup eru bindandi fyrir kaupanda samkvæmt skilmálum og skilyrðum skurdur.is.

8. Greiðsla

Greiðslu getur kaupandi innt af hendi með eftirfarandi leiðum:

  • Greiðslusíða Saltpay
    Kaupandi greiðir með debet- eða kreditkorti í gegnum greiðslusíðu Saltpay.
  • Netgíró
    Kaupandi þarf að hafa aðgang að Netgíró til að nota greiðslumöguleikann. Kaupandi notast við skilmála Netgíró.
  • Aur
    Kaupandi þarf að hafa aðgang að Aur til að nota greiðslumöguleikann. Kaupandi notast við skilmála Aurs.
  • Kass
    Kaupandi þarf að hafa aðgang að Kass til að nota greiðslumöguleikann. Kaupandi notast við skilmála Kass.

9. Skilaréttur

Skurdur.is skuldbindur sig til að afhenda kaupanda vöru eða þjónustu fyrir kaupum í samræmi við skilmála þessa og gildandi rétt. Kaupandi getur ekki skilað vöru til skurdur.is, valið nýja eða fengið hana endurgreidda.

9.1 Aðeins er tekið við vörum í óopnuðum umbúðum

Ef til endurgreiðslu kemur innan 14 daga frá kaupum, skv. tilmælunum, mun skurdur.is endurgreiða kaupanda með innlögn á bankareikning eða með inneign hjá skurdur.is sem kaupandi getur ráðstafað að vild í næstu kaupum hjá skurdur.is.

10. Galli

Ef vara er gölluð er skurdur.is skylt að bjóða kaupanda nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003 á kaupandi rétt á því að fá gallaða vöru bætta ef tilkynning berst okkur innan tveggja mánaða frá því að kaupandi varð var við galla. Skurdur.is mælir með því að kaupandi sendi tölvupóst á skurdur@skurdur.is sem fyrst frá því að galli uppgötvast. Skurdur.is sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins. Skurdur.is áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð innan 7 daga.

11. Ábyrgð

Ábyrgð skurdur.is hefur ekki í för með sér takmarkanir á rétti sem kveðið er á um í lögum um neytendakaup nr. 48/2003. Ábyrgð vegna galla á vöru er í samræmi við lög um neytendakaup og miðast við dagsetningu kaupa til einstaklinga. Ef um er að ræða sölu til fyrirtækis er ábyrgð á galla 1 ár frá kaupdagsetningu samkvæmt lögum um lausafjárkaup nr. 50/2000.

12. Eignarréttur

Seldar vörur eru eign skurdur.is þar til kaupverð er greitt að fullu.

13. Annað

Skurdur.is áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum þessara skilmála, enda verði kaupanda tilkynnt um það. Útsending nýrra skilmála til kaupanda og/eða birting á vefsíðu skurdur.is telst nægileg tilkynning. Litið er svo á að kaupandi hafi samþykkt breytinguna ef hann kaupir vöru eða þjónustu eftir að tilkynning um breytingu hefur verið gefin út.

14. Ágreiningur

Rísi ágreiningur milli aðila um efni þessara viðskiptaskilmála eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir Kærunefnd þjónustu- og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef allt þrýtur er heimilt að reka mál vegna þessa fyrir Héraðsdómi Suðurlands skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.

15. Gildistími

Skilmálar þessir gilda frá 22. júlí 2022.